Fotbolti.net
01.09.23 - 16:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Palhinha fer ekki til Bayern

Palhinha fer ekki til Bayern
Canon

Mynd: Getty Images

Joao Palhinha verður ekki leikmaður Bayern Munchen. Það er orðið ljóst, glugginn í Þýskalandi lokaði klukkan 16 á íslenskum tíma og Fulham, félagið sem Palhinha er samningsbundinn, tókst ekki að finna mann í stað Palhinha fyrir þann tíma.

Fulham var ekki tilbúið að samþykkja tilboð í leikmanninn þegar óvíst var hvort að félagið gæti fundið mann í hans stað.
Palhinha var mættur til Þýskalands og beið eftir tíðindum varðandi félagaskipti sín en þegar Fulham lenti á vegg í leit sinni varð ljóst að ekkert úr því að Bayern myndi kaupa portúgalska miðjumanninn.

Fulham reyndi að fá Pierre-Emile Höjbjerg en hann vildi frekar fara til Atletico Madrid á Spáni.

Þessi flétta ætti þó ekki að hafa áhrif á sölu Ryan Gravenberch frá Bayern til Liverpool. Enn er beðið eftir (Staðfest) á þau skipti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.