Fotbolti.net
01.10.24 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Stones: Ég elska að spila þessa stöðu

Stones: Ég elska að spila þessa stöðu
Canon

Mynd: Getty Images

„Ef ég verð beðinn um það er ég 100% klár," segir John Stones varnarmaður Manchester City sem er meira en klár í að spila sem varnartengiliður á miðjunni í fjarveru Rodri.

Rodri spilar ekki meira á tímabilinu og virðist Pep Guardiola ætla að skipta því á milli leikmanna að spila hans stöðu á miðjunni. í 1-1 jafnteflisleiknum gegn Newcastle á laugardag var hann með Mateo Kovacic og Rico Lewis aftarlega á miðjunni.

Stones hefur oft verið látinn spila þessa stöðu og er vanur að færast úr vörninni á miðsvæðið þegar City er með boltann.
<b>Enski boltinn</B> - Nú hljóta þeir að reka Ten Hag og Palmer sjóðheitur
TENGT EFNI

Enski boltinn - Nú hljóta þeir að reka Ten Hag og Palmer sjóðheitur

„Það eru mikil gæði í hópnum okkar og margir sem geta spilað þessa stöðu. Ég persónulega elska að spila þarna."

City mætir Slovan Bratislava í Meistaradeildinni í kvöld. Kevin De Bruyne ferðaðist ekki með til Slóvakíu en hann er að jafna sig á vöðvameiðslum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.