02.01.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Kevin Kilbane til Huddersfield (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Huddersfield Town hefur fengið Kevin Kilbane á láni frá Hull City út tímabilið.
Þessi 33 ára gamli Íri getur spilað bæði sem vinstri bakvörður og vinstri kantmaður.
Á ferli sínum hefur Kilbane leikið 108 landsleiki með Írum en auk Hull hefur hann leikið með Preston, WBA, Sunderland, Everton og Wigan á Englandi.
Kilbane mun reyna að hjálpa Jóhannesi Karli Guðjónssyni og félögum að komast upp um deild en Huddersfield er í toppbaráttunni í ensku fyrstu deildinni.

Heimild: BBC