02.01.11 - 07:07
Magnús Már Einarsson
Andy O\'Brien til Leeds (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leeds United hefur gert tveggja og hálfs árs samning við varnarmanninn Andy O\'Brien en hann kemur til félagsins frá Bolton.
Þessi 31 árs gamli Íri hefur verið í láni hjá Leeds undanfarið og nú hefur hann gengið alfarið til liðs við félagið.
Cardiff reyndi einnig að fá O\'Brien en hann ákvað frekar að ganga til liðs við Leeds.

,,Þrátt fyrir spennandi tilboð frá Cardiff þá ákvað hann að ganga til liðs við okkur,\" sagði Ken Bates formaður Leeds.
O\'Brien, sem lék áður með Newcastle, hefur skorað tvö mörk í níu leikjum með Leeds hingað til.

Heimild: BBC