Fotbolti.net
02.01.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Luiz Gustavo til Bayern Munchen (Staðfest)

Luiz Gustavo með Ralf Rangnick þjálfara Hoffenheim.

Luiz Gustavo með Ralf Rangnick þjálfara Hoffenheim.

Canon

Mynd:

Brasilíski miðjumaðurinn Luiz Gustavo hjá Hoffenheim gekk í gær í raðir Bayern Munchen.
Þessi 23 ára gamli leikmaður hafði verið samningsbundinn Hoffenheim til ársins 2014 en Bayern Munchen keypti hann og samdi til ársins 2015.

Talið er að kaupverðið sé 15 milljónir evra en það hefur þó ekki verið staðfest ennþá.

Karl Heinz Rumenigge formaður Bayern sagði að skrifað verði formlega undir samninginn í dag eftir að hann gengst undir læknisskoðun. Gustavo hafði komið frá Corinthians í heimalandi sínu fyrir tveimur árum og var búinn að skora tvö mörk á tímabilinu.

Þýska dagblaðið Bild fullyrðir í dag að félagaskiptin hafi þegar haft þau áhrif að Ralf Rangnick þjálfari Hoffenheim hafi sagt starfi sínu lausu en hann var mótfallinn sölunni.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.