Fotbolti.net
02.01.11 - 11:07
Hafliði Breiðfjörð

Þjálfari Gylfa hjá Hoffenheim hættur (Staðfest)

Ralf Rangnick hefur prinsippin í lagi og hætti því eigandi Hoffenheim ákvað að selja leikmann án hans samþykkis.

Ralf Rangnick hefur prinsippin í lagi og hætti því eigandi Hoffenheim ákvað að selja leikmann án hans samþykkis.

Canon

Mynd: Getty Images

Ralf Rangnick þjálfari Hoffenheim í Þýskalandi sem Gylfi Þór Sigurðsson leikur með hefur sagt starfi sínu lausu þar sem félagið ákvað að selja Luiz Gustavo til Bayern Munchen.
Bæði Rangnick sjálfur og þýska félagið staðfestu þetta í morgun. Þýska dagblaðið Bild hafði sagt frá þessu í gærkvöldi en þá vildi enginn staðfesta neitt.

Marco Pezzaiuoli sem var aðstoðarmaður Rangnick mun taka við starfi hans.

Rangnick var mjög ósáttur við að félagið myndi selja Brasilíumanninn Gustavo en Dietmar Hopp eigandi félagsins ákvað samt að selja hann.

Rangnick hafði tekið við liðinu árið 2006 og fékk góðar fjárhæðir til að styrkja liðið sem hann kom beint úr 3. deildinni upp í þá fyrstu.

Á fyrstu leiktíð í efstu Bundesligunni var liðið lengi vel í efsta sæti en festi sig svo endanlega í sessi um miðja deildina. Liðið endaði fyrri hluta tímabilsins núna í áttunda sæti áður en deildin fór í vetrarfrí og er komið í fjórðungsúrslit bikarsins.

Rangnick hefur áður deilt við Hopp um félagaskiptamál en Hopp þessi varð milljarðamæringur í hugbúnaðargeiranum og hefur dælt peningum í félagið í rúman áratug auk þess að kaupa nýjan 30 þúsund manna leikvang.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.