02.02.11 - 13:51
Magnús Már Einarsson
Roman Bednar til Ankaragucu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Ankaragucu hefur fengið Roman Bednar framherja WBA á láni út tímabilið.
Bristol City gerði 1,2 milljóna punda tilboð í Bednar rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði en tékkneski leikmaðurinn hafði ekki áhuga á að fara þangað.
Bednar, sem er 27 ára, ákvað þess í stað að fara til Tyrklands og gengið var frá samningum þess efnis í dag.
Félagaskiptaglugginn er opinn lengur í Tyrklandi en í mörgum öðrum löndum Evrópu og því gat Bednar skipt í dag.
Bednar hefur ekki verið inni í myndinni hjá Roberto Di Matteo stjóra WBA en hann fór meðal annars til Leicester á láni fyrr á tímabilinu.

Heimild: Sporting Life