Ten Hag: Ég hata að segja það


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Erik ten Hag stjóri Manchester United var eðlilega ekki sáttur með frammistöðu sinna manna í tapinu gegn Newcastle í dag.
Man Utd tapaði 2-0 og hann viðurkennir að betra liðið vann.
„Já í dag (vann betra liðið), ég hata að segja það en þeir voru betri í dag. Þeir sýndu meiri ákefð og ástríðu, þeir vildu þetta meira en við," sagði Ten Hag.
Hann var ekki hrifinn af sóknarleik liðsins. Wout Weghorst var ekki mikið inn í leiknum.
„Við fengum okkar tækifæri en við verðum að sækja af sömu ákefð og þeir gerðu, þetta var alls ekki nógu gott," sagði Ten Hag.
„Sóknarleikurinn var ekki nógu góður, ég vil ekki einbeita mér af einum manni því þetta hafði ekkert með hann að gera, þetta snýst um liðið. Við náðum ekki að brjótast í gegnum þá."




