Fotbolti.net
02.04.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sævar Atli: Síðustu mánuðir hafa verið þeir erfiðustu á ferlinum

Sævar Atli: Síðustu mánuðir hafa verið þeir erfiðustu á ferlinum
Canon

Mynd: EPA

Sævar Atli Magnússon, leikmaður norska félagsins Brann, hefur sent stuðningsmönnum liðsins skilaboð eftir að hafa gengist undir enn eina aðgerð.

Sævar Atli reif liðþófa í hné í landsleik gegn Frakklandi í október og þurfti að fara í aðgerð. Hann fékk sýkingu í hnéið í aðgerðinni og þurfti að gangast undir tvær aðgerðir til viðbótar.
Sævar Atli þarf að fara í enn eina aðgerðina - Frá fram yfir HM
TENGT EFNI

Sævar Atli þarf að fara í enn eina aðgerðina - Frá fram yfir HM

Brann greindi frá því í síðasta mánuði að hann þurfti að fara í enn eina aðgerðina og verður ekki klár í slaginn fyrr en eftir HM í sumar. Hann skrifaði stuðningsmönnum skilaboð sem félagið birti á heimasíðu sinni í dag.

„Síðustu mánuðir hafa verið þeir erfiðustu á ferlinum. Að fara úr því að spila tvo leiki í viku með frábæra liðinu mínu og skora mörk í að fara skyndilega í fjórar aðgerðir og vera á hliðarlínunni í sex mánuði," segir Sævar Atli.

Hann segist vera sannfærður um að hann muni mæta tvíelfdur til leiks.

„Ég veit að það mun taka tíma að komast í hlaupaform en ég lofa því að ég mun gera allt sem ég get. Þegar ég kem aftur á Brann Stadion munu stuðningsmenn sjá að ég er enn hungraðari en áður, alltaf undir pressu og farinn að skora mörk aftur. Ég get ekki beðið eftir því að snúa aftur til að fagna með ykkur. Ég hef tilfinningu fyrir því að ég muni snúa aftur fyrr en fólk heldur og ég hlakka mikið til."

Hann þakkaði stuðningsmönnum fyrir skilaboðin og hann fullvissaði þá um að hann hafi lesið þau þrátt fyrir að hafa ekki svarað þeim öllum.

Heimild: Brann

Sævar Atli: Síðustu mánuðir hafa verið þeir erfiðustu á ferlinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.