Fotbolti.net
02.09.23 - 21:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fyrrum liðsfélagi Gylfa: Hef aldrei séð neitt þessu líkt

Gylfi á æfingu með Lyngby.

Gylfi á æfingu með Lyngby.

Canon

Mynd: Lyngby

Danski markvörðurinn Jonas Lössl segir að það sé stórt fyrir dönsku úrvalsdeildina að Gylfi Þór Sigurðsson sé búinn að semja við Lyngby.
Gylfi er að snúa aftur í fótboltann eftir rúmlega tveggja ára fjarveru en hann ákvað að skrifa undir hjá Lyngby.

Hjá Lyngby hittir Gylfi fyrir Frey Alexandersson sem var aðstoðarþjálfari landsliðsins á sínum tíma. Freyr er í dag þjálfari Lyngby. Sævar Atli Magnússon, Kolbeinn Birgir Finnsson og Andri Lucas Guðjohnsen eru í leikmannahópi Lyngby.

Lössl, sem spilar í dag með Midtjylland, lék með Gylfa hjá Everton fyrir nokkrum árum síðan og veit hversu mikið býr í honum sem fótboltamanni.

„Hann er algjör atvinnumaður," sagði Lössl við TIpsbladet. „Hann var mjög góður liðsfélagi og frábær leikmaður með stórkostlegar aukaspyrnur. Hann tók mikið af aukaspyrnum á æfingasvæðinu og það var ótrúlegur stöðugleiki í þeim, ég hef aldrei séð annað eins."

„Hann er frábær leiðtogi og frábær leikmaður fyrir íslenska landsliðið."

Það er ekki á hverjum degi þar sem eins stórt nafn kemur í dönsku úrvalsdeildina.

„Það gerist ekki oft að leikmaður með hans ferilskrá kemur í Superliguna. Það verður áhugavert að sjá hvernig þetta gengur upp," sagði Lössl.
Jonas Lössl.

Jonas Lössl.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.