Fotbolti.net
03.01.11 - 21:00
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Federico Macheda til Sampdoria (Staðfest)

Federico Macheda.

Federico Macheda.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Sampdoria hefur staðefst að Federico Macheda framherji Manchester United sé kominn til félagsins á láni út tímabilið.
Nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni höfðu viljað fá þennan 19 ára gamla framherja til liðs við sig eftir að Sir Alex Ferguson stjóri Man Utd lýsti því yfir að hann yrði lánaður.

Sampdoria vantaði framherja eftir að Antonio Cassano var leyft að fara til AC Milan í kjölfar deilna við Riccardo Garrone forseta félagsins.

,,Ég er mjög ánægður með að Macheda hafi valið Sampdoria og tel að stuðningsmennirnir séu sama sinnis,\" sagði Garrone.

,,Macheda getur auðveldlega fyllt í það svæði sem Cassano skildi eftir sig, hann mun pottþétt gera vel. Á þessum fimm mánuðum reynum við að fara vel með hann.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.