03.01.11 - 21:11
Hafliði Breiðfjörð
Frank de Boer tekur við Ajax (Staðfest)

Frank de Boer tekur við Ajax.

Mynd: Getty Images

Frank de Boer tekur við Ajax.

Mynd: Getty Images
Hollenska félagið Ajax tilkynnti í kvöld að Frank de Boer hafi verið ráðinn þjálfari liðsins til sumarsins 2014 en hann tekur við starfinu af Martin Jol sem hætti í síðasta mánuði.
De Boer er fertugur fyrrverandi landsliðsmaður Hollendinga. Hann er aðstoðarþjálfari Bert van Marwijk með hollenska landsliðið og hafði stýrt Ajax tímabundið eftir brottför Jol.
De boer spilaði í ellefu leiktíðir með Ajax frá 1988 til 1998 en lék einnig með Rangers, Barcelona og Galatasaray.
Hann spilaði á ferli sínum yfir 400 deildarleiki og vann til ýmissa verðlauna eins og sigurs í UEFA Cup, Meistaradeild Evrópu og Heimsmeistaramótifélagsliða með Ajax.
Hann spilaði 112 leiki fyrir hollenska landsliðið og hefur haldið Ajax í efri hlutanum í Hollandi þar sem liðið er nú í fjórða sæti. Auk hans hefur Ajax ráðið Hennie Spijkerman sem aðstoðarmann hans en sá var áður tæknilegur ráðgjafi hjá Ajax í Höfðaborg í Suður Afríku.

Heimild: Sky