Fotbolti.net
03.02.11 - 14:38
Magnús Már Einarsson

Alexander Veigar Þórarinsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Alexander Veigar Þórarinsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Veigar Þórarinsson hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Alexander hefur æft með liðinu í vetur og tekið þátt í flestum æfingaleikjum liðsins.

Hann er 22 ára gamall miðjumaður og á að baki 28 leiki með Grindavík og Fram í efstu deild karla.

Hann hefur einnig leikið með Reyni Sandgerði hér á landi.

,,Stjórn BÍ/Bolungarvíkur er gríðarlega ánægð með að fá Alexander til liðs við félagið. Hann hefur sýnt það á æfingum og í leikjum að þarna fer góður leikmaður á ferð. Hann mun klárlega styrkja hópinn fyrir komandi átök í 1. deildinni í sumar,\" segir í frétt á heimasíðu BÍ/Bolungarvíkur.

Heimild: Heimasíða BÍ/Bolungarvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.