Fotbolti.net
03.02.11 - 17:03
Magnús Már Einarsson

Dietmar Hamann hættur - Fer í þjálfaralið Leicester (Staðfest)

Dietmar Hamann hættur - Fer í þjálfaralið Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sven-Goran Eriksson, stjóri Leicester, hefur fengið Dietmar Hamann í þjálfaralið sitt.

Hamann, sem er 37 ára, hefur um leið lagt skóna á hilluna en í vetur hefur hann leikið með MK Dons og verið í þjálfaraliði félagsins að auki.
Hamann á að fylla skarð Chris Powell sem hætti í þjálfaraliði Leicester á dögunum til að taka við Charlton.

Hamann lék meðal annars með Liverpool á sínum tíma auk þess sem hann var í þýska landsliðinu.

Þá lék hann um tíma undir stjórn Eriksson hjá Manchester City.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.