03.04.11 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Paul Ince hættur hjá Notts County (Staðfest)

Paul ince var einn af tveimur svörtum knattspyrnustjórum á Englandi, nú er aðeins einn eftir og hann stýrir Charlton.

Mynd: Getty Images

Paul Ince, knattspyrnustjóri Notts County, er hættur sem stjóri félagsins eftir að hafa náð samkomulagi við yfirstjórn félagsins.
Ince stýrði Notts í fimm mánuði en núna er liðið búið að tapa fimm leikjum í röð og er aðeins tveimur sætum yfir fallsæti í ensku 1. deildinni (C-Deild).

,,Það var leiðinlegt að stjórnin þurfti að halda fund eftir tapið gegn Oldham,\" sagði Ray Trew, forseti félagsins.
,,Því miður var þessi fundur nauðsynlegur vegna þess að liðið hafði tapað fimm leikjum í röð. Við funduðum með stjórn félagsins og Paul (Ince). Það var strax augljóst að allir aðilar voru sammála um að best væri fyrir alla ef Ince myndi láta stjórnartaumana af hendi og gerði hann það án mótmæla.
,,Ég vil þakka Paul fyrir starf hans á Meadow Lane. Ég er viss um að undir öðrum kringumstæðum hefði þetta samstarf gengið upp en við erum sammála um að þessi ákvörðun komi sér best fyrir bæði Paul og félagið.\"

Heimild: BBC