03.04.11 - 22:02
Smári Jökull Jónsson
Roland Nilsson tekur við FCK (Staðfest)

Roland Nilsson verður næsti þjálfari FCK

Mynd: Getty Images

Roland Nilsson mun taka við sem þjálfari FCK frá Kaupmannahöfn af Ståle Solbakken en danska liðið staðfesti þetta á heimasíðu sinni nú um helgina. Enn er þó ekki ljóst hvenær Nilsson mun flytja sig um set en hann er enn með samning við Malmö FF sem hann gerði að sænskum meisturum í fyrra á sínu þriðja ári sem þjálfari liðsins.
Það hefur verið lengi í umræðunni að Nilsson taki við FCK af Solbakken, sem tekur við norska landsliðinu um næstu áramót, en hvorki Nilsson né danska liðið hafa viljað staðfesta það fyrr en nú. Malmö FF og FCK hafa síðustu vikur staðið í samningaviðræðum um hvenær Nilsson taki við, en FCK vill fá hann í sumar áður en danska tímabilið hefst en þá er tímabilið í Svíþjóð hálfnað.
Roland Nilsson er með samning við Malmö til 1.desember en reglur um félagaskipti þjálfara eru ekki eins strangar og hjá leikmönnum. Því gæti Nilsson ákveðið að fara frá sænsku meisturunum áður en samningurinn rennur út, en þá á Malmö rétt á skaðabótum. FCK hefur þó viljað leysa málin í góðu og boðið Svíunum 18 milljónir króna fyrir að að leysa Nilsson undan samningi, en forráðamenn Malmö vilja fá meira.
Þegar FCK tilkynnti á heimasíðu sinni að Nilsson yrði næsti þjálfari félagsins sögðu þeir að hann tæki við þann 1.júlí. Forráðamenn Malmö voru þó fljótir að benda á að ekkert samkomulag á milli félaganna væri í höfn, en þessi tímasetning væri ekki sú besta fyrir sænska liðið því þá er deildin í Svíþjóð í fullum gangi og keppni í Meistaradeild Evrópu framundan. Dönsku meistararnir hafa þó lagt áherslu á að fá Nilsson strax í sumar svo hann geti tekið þátt í undirbúningi fyrir danska tímabilið og ekki síst keppni í Meistaradeildinni, en sem kunnugt er komst FCK alla leið í 16-liða úrslit keppninnar í ár þar sem þeir féllu úr leik gegn Chelsea.
Hinn 47 ára gamli Roland Nilsson er fyrrum landsliðsmaður Svía og lék 116 A-landsleiki á sínum tíma. Hann var hluti af bronsliðinu eftirminnilega á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum 1994 og var valinn þjálfari ársins í Svíþjóð í fyrra eftir að hafa gert Malmö að meisturum.
Malmö FF er þegar farið í leit að nýjum þjálfara og hefur fyrrum landsliðsmaðurinn Jonas Thern meðal annars verður nefndur sem líklegur eftirmaður ásamt Sixten Boström þjálfara Örebro.