03.05.23
Spá þjálfara í 2. deild: 5. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Nýliðum Sindra er spáð góðu gengi, þeim er spáð fimmta sæti.
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5. Sindri, 73 stig
6. Höttur/Huginn, 69 stig
7. Dalvík/Reynir, 63 stig
8. Völsungur, 53 stig
9. Víkingur Ó., 46 stig
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig
Lokastaða í fyrra: Sindri fór með sigur af hólmi í 3. deild í fyrra en þeir höfðu betur gegn Dalvík/Reyni í baráttunni um fyrsta sætið á markatölu. Nú eru Hornfirðingar að taka skrefið upp og verður áhugavert að sjá hvernig það gengur.
Þjálfarinn: Óli Stefán Flóventsson er þjálfari Sindra en það var mikill happafengur fyrir félagið að fá hann aftur í félagið eftir tímabilið 2020. Óli Stefán gerði frábæra hluti með Grindavík og stýrði í kjölfarið KA í efstu deild. Óli þekkir vel til hjá Sindra eftir að hafa spilað og þjálfað þarna áður fyrr. Óli er með UEFA pro gráðu í þjálfun og er virkilega fær í sínu fagi.
Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.

„Úr leik hjá Sindra.“
Um Sindra segja þeir: Hvað á maður að segja um Sindra? Þetta er einhvern veginn bara Sindri. Það er ótrúlegt hvað það er lítið af breytingum á milli ára, liðið hefur haldið stöðugum leikmannahópi og þjálfara í ágætis tíma og það mun hjálpa þeim. Þeir verða erfiðir við að eiga, alltaf erfitt að mæta á þeirra heimavöll. Ætli þeir verði ekki um miðja deild?
Styrkleikar: Eru með besta þjálfarann í deildinni. Óli Stefán hefur unnið frábært starf fyrir Sindra. Hafa náð að halda í sama kjarna af leikmönnum undanfarin ár og hver leikmaður þekkir sitt hlutverk. Eru mjög vel drillaðir og taktískt vel spilandi.
Veikleikar: Verða að treysta á hópinn sem kom þeim upp úr 3. deild. Gríðarlega erfitt hefur reynst að sannfæra íslenska leikmenn um að spila á Höfn og Sindri er ekki að sanka að sér nýjum gám erlendum leikmönnum fyrir hvert mót.
Lykilmenn: Þorlákur Helgi Pálmason, Abdul Bangura og Ibrahim Sorie Barrie.

„Óli Stefán Flóventsson.“
Gaman að fylgjast með: Bjarki Flóvent Ásgeirsson. Ungur og efnilegur leikmaður að spila í fyrsta sinn í 2. deild. Verður gaman að sjá hvort honum takist að taka næsta skref.
Komnir
Hilmar Þór Kárason frá Kormáki/Hvöt
Ivan Paponja frá Króatíu
Óliver Berg Sigurðsson frá Grindavík (á láni)
Farnir
Einar Karl Árnason í ÍR
Guðmundur Reynir Friðriksson í Stjörnuna
Gunnar Orri Aðalsteinsson í Stjörnuna
Hermann Þór Ragnarsson í ÍBV
Rafael Santos Caetano til Bandaríkjanna
Rodrigo da Costa Dias í KÁ
Þjálfarinn segir - Óli Stefán Flóventsson
„Ég veit satt að segja ekki hvað mér finnst um þessa spá því ég hélt að okkur yrði spáð mun neðar. Við erum nýliðar í deildinni og við höfum misst nokkra lykilleikmenn úr liðinu frá því í fyrra og fengið færri á móti. Hins vegar höfum við verið að byggja upp og búa til grunn af leikmönnum af svæðinu sem fá stærra hlutverk í sumar."

„Abdul Bangura er einn mikilvægasti leikmaður Sindra.“
„Sindri kemur upp í deildina með ákveðið "project" en inn í því verkefni er mjög mikilvægt að festa rætur í 2.deild. Markmiðin í ár eru því mjög skýr í því hvernig við ætlum að gera hlutina."
„Deildin í ár verður gríðarlega erfið því í henni eru sterk lið með frábæra leikmannahópa og mjög færa þjálfara. Það er líka áhugavert að skoða hversu ólík liðin í deildinni virðast vera, út frá leikmannahópum, umgjörð, aðstöðu og stefnu liðanna."
„Mín tilfinning er að deildin verði jöfn og spennandi. Okkur hlakkar mikið til að takast á við þetta krefjandi en skemmtilega verkefni."
Fyrstu þrír leikir Sindra:
6. maí, Sindri - ÍR (Jökulfellsvöllurinn)
13. maí, KF - Sindri (Ólafsfjarðarvöllur)
20. maí, Sindri - Þróttur V. (Jökulfellsvöllurinn)

„Hermann Þór Ragnarsson fór í ÍBV.“

„Hvað gera Sindramenn í sumar?“