03.11.10 - 08:45
Alexander Freyr Tamimi
Sergio Batista ráðinn landsliðsþjálfari Argentínu (Staðfest)

Sergio Batista var ráðinn landsliðsþjálfari Argentínu.

Mynd: Getty Images

Argentínska knattspyrnusambandið hefur staðfest ráðningu Sergio Batista í stöðu landsliðsþjálfara. Hann er samningsbundinn landsliði Argentínu út undankeppni HM 2014 og verður samningurinn framlengdur út lokakeppnina ef liðið kemst alla leið til Brasilíu.
Batista stýrði U-23 liði Argentínu til gullverðlauna á Ólympíuleikunum 2008 í Peking og hefur hann verið bráðabirgðaþjálfari síðan Diego Maradona yfirgaf stöðuna eftir HM í Suður Afríku.
Batista hefur nú þegar stýrt liðinu í þremur vináttuleikjum; 4-1 sigri gegn heimsmeisturum Spánar, 1-0 sigri gegn Írlandi og 1-0 tapi gegn Japan.
„Ég er mjög þakklátur fyrir þetta. Þessu starfi fylgir mikil ábyrgð og ég hlakka til að halda áfram minni vinnu hér,\" sagði Batista.
„Ég hef trú á sjálfum mér. Þegar maður fer út í þjálfun setur maður sér markmið og það stærsta er að taka við landsliðinu. Kannski náði ég þessum áfanga frekar snemma, en ég vil ekki misnota tækifærið. Aðalmarkmiðið er að komast á heimsmeistaramótið og vinna það.\"

Heimild: Sporting Life