Fotbolti.net
03.11.10 - 20:03
Alexander Freyr Tamimi

Jurgen Klinsmann ráðinn til Toronto FC (Staðfest)

Jurgen Klinsmann hefur ákveðið að skella sér til Kanada.

Jurgen Klinsmann hefur ákveðið að skella sér til Kanada.

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska knattspyrnugoðsögnin Jurgen Klinsmann hefur skrifað undir samning við kanadíska knattspyrnufélagið Toronto FC um að sinna þar ráðgjafahlutverki. Toronto FC er eina kanadíska liðið í bandarísku MLS deildinni þessa stundina.
Hlutverk Klinsmann er að hjálpa félaginu að byggja upp nýtt lið eftir að Mo Johnston var rekinn úr svipuðu hlutverki í september, en þar hafði hann verið síðan árið 2006.

„Það er mikill heiður fyrir okkur að vinna með knattspyrnugoðsögn á borð við Jurgen og fá aðgang af hans gríðarlegu reynslu og þekkingu til að hjálpa okkur að bæta liðið,\" sagði Tom Anselmi, varaforseti félagsins.

Klinsmann átti farsælan feril sem knattspyrnumaður og skoraði 47 mörk í 108 leikjum fyrir Þýskaland.

Toronto endaði í sjötta sæti af átta liðum í austurdeild MLS á þessu tímabili.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.