03.11.10 - 17:19
Magnús Valur Böðvarsson
Þórhallur Dan tekur við Álftanesi (Staðfest)

Þórhallur Dan í Álftanesgallanum eftir undirskriftina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórhallur Dan Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Álftaness sem leikur í þriðju deild karla. Hann skrifaði undir tveggja ára samning í dag.
Þórhallur sem er 38 ára gamall var fyrirliði Hauka í sumar og tilkynnti það eftir tímabil að hann hefði lagt skóna á hilluna. Álftanes er hans fyrsta þjálfaraverkefni í meistaraflokki.
Hann skrifaði undir samning seinni partinn í dag og verður nánar rætt við hann í sjónvarpsviðtali hér á Fótbolta.net seinna í dag.
Álftanes hefur leikið undanfarin fjögur ár í þriðju deild karla og farið í 8-liða úrslit seinustu tvö ár en fallið úr leik eftir það.
Það virðist vera mikill metnaður í Álftnesingum sem ætla sér greinilega stóra hluti á næsta tímabili undir stjórn Þórhalls.