03.12.10 - 10:37
Hafliði Breiðfjörð
Jens Elvar Sævarsson í Þrótt (Staðfest)

Jens Elvar er kominn í Þrótt að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jens Elvar er kominn í Þrótt að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jens Elvar Sævarsson er genginn aftur í raðir uppeldisfélags síns, Þróttar og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Jens Elvar hefur æft með Þrótti að undanförnu og hefur skorað grimmt í æfingaleikjum liðsins.
Hann hefur undanfarin tvö ár verið spilandi þjálfari hjá Hvöt í 2. deildinni og liðið endaði í fimmta sæti deildarinnar í sumar.
Hann hefur yfirleitt spilað sem bakvörður en hefur leikið hinar ýmsu stöður á vellinum og þannig var hann í markinu í síðasta deildarleik sínum með Hvöt.
Hann hefur auk Þróttar og Hvöt leikið með Fylki og Fjarðabyggð.
Samtals hefur hann leikið 153 deildarleiki og bikar með liðum sínum og skorað í þeim 13 mörk en hann skoraði tvö mörk í 12 leikjum í deild og bikar í sumar.
Jens Elvar spilaði á sínum tíma ellefu leiki með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.