Fotbolti.net
04.01.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

David Bellion til Nice (Staðfest)

David Bellion til Nice (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

David Bellion, framherji Bordeaux, hefur gengið til liðs við sitt fyrrum félag Nice á láni.
Bellion lék bæði með Sunderland og Manchester United á Englandi á sínum tíma.

Þessi 28 ára gamli leikmaður var í þrjú tímabil hjá United áður en hann gekk í raðir Nice árið 2006. Eftir eitt ár þar fór Bellion síðan til Bordeaux árið 2007.

Síðan þá hefur Bellion skorað 19 mörk í frönsku deildinni með Bordeaux en hann hefur einungis leikið tvo leiki með liðinu eftir að Jean Tigana tók við stjórnartaumunum af Laurent Blanc síðastliðið sumar.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.