Fotbolti.net
04.01.11 - 09:10
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Julio Baptista til Malaga (Staðfest)

Baptista í leik með Roma.

Baptista í leik með Roma.

Canon

Mynd: Getty Images

Julio Baptista er genginn í raðir Malaga á Spáni frá AS Roma á Ítalíu og skrifaði í gær undir þriggja og hálfs árs samning eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun.
Baptista sem er 29 ára gamall brasilískur framherji skoraði 15 mörk í 75 leikjum fyrir Roma eftir að hafa komið þangað árið 2008.

Malaga er þriðja félagið sem hann spilar fyrir á Spáni því hann var í tvær leiktíðir hjá Sevilla áður en hann gekk til liðs við Real MAdrid árið 2005 þar sem hann vann deildina tímabilið 2007-2008. Hann var einnig á láni hjá Arsenal á Englandi frá Real Madrid.

Malaga sem er í 16. sæti spænsku deildarinnar, þremur stigum frá fallsæti, hefur keypt nokkra leikmenn í janúar, auk Baptista má þar nefna Argentínumanninn Martin Demichelis sem kom frá Bayern Munchen.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.