04.02.11 - 07:20
Hafliði Breiðfjörð
Kristen Edmonds og Ashley Thompson í Stjörnuna (Staðfest)

Nýir leikmenn eru að ganga til liðs við Stjörnuna.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Stjarnan hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild kvenna en tveir bandarískir leikmenn voru að ganga til liðs við félagið og sá þriðji kemur fljótlega.
Ashley Thompson er 25 ára gamall bandarískur markvörður sem kemur til félagsins frá Sky Blue í bandaríkjunum þar sem hún hefur verið varamarkvörður.
Hjá Stjörnunni er henni ætlað að leysa hlutverk Söndru Sigurðardóttur sem hefur varið mark liðsins undanfarin ár en er farin í sænsku deildina.
Kristen Edmonds hefur einnig verið hjá Sky Blue en þó í stuttan tíma á undirbúningstímabilinu á síðasta ári en fór svo til Quickstrike Lady Blues þar sem hún lék í fyrra. Hún er framherji eða kantmaður.
Stjarnan hyggst svo bæta við sig þriðja erlenda leikmanninum en ekki er enn ljóst hver hún verður. Kristen og Ashley koma til landsins í mars.
Stjarnan hafði áður fengið til liðs við sig Þórhildi Stefánsdóttur úr Haukum en missa Söndru og bandarísku leikmennina þrjá sem voru með þeim í fyrra. Þá kemur Eyrún Guðmundsdóttir aftur eftir að hafa misst af síðustu leiktíð vegna meðisla.