Fotbolti.net
04.02.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Dúfa, Ester og Guðríður í Hauka (Staðfest)

Dúfa í leik með Keflavík. Hún snýr aftur í lið Hauka.

Dúfa í leik með Keflavík. Hún snýr aftur í lið Hauka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið Hauka hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil því þær Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir, Elísabet Ester Sævarsdóttir og Guðríður Hannesdóttir eru gengnar til ilðs við félagið.
Markvörðurinn Dúfa kemur til Hauka að nýju eftir að hafa leikið þrjá leiki með Hetti síðasta sumar. Þar áður var hún hjá Haukum sumarið 2009. Hún er 28 ára og hóf ferilinn með íA árið 1998 og hefur einnig leikið með Breiðablik og Keflavík.

Elísabet Ester er 22 ára og kom til KR frá Keflavík fyrir síðustu leiktíð. Hún var svo lánuð til Hauka og spilaði þar út tímabilið samtals sex leiki en gengur nú alfarið yfir í hauka.

Guðríður Hannesdóttir er 25 ára. Hún hafði verið hjá Stjörnunni í fimm ár þegar hún var lánuð til Stjörnunnar á miðju tímabili í fyrra og spilaði fjóra leiki. Hún gengur nú alveg í raðir Hauka.

Haukar hafa misst nokkra leikmenn frá síðustu leiktíð. Markvörðurinn Sonný Lára Þráinsdóttir er hætt, Jóna Sigríður Jónsdóttir fór í Grindavík, Þórhildur Stefánsdóttir í Stjörnuna og Margrét Sif Magnúsdóttir í FH.

Þá eru Björg Magnea Ólafs og Þórdís Pálsdóttir í námi og óvíst hvort þær komi aftur og erlendu leikmennirnir sem léku með þeim í sumar koma ekki aftur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.