04.02.11 - 17:30
Hafliði Breiðfjörð
Meagan McCray í Val (Staðfest)

Nýr markvörður er kominn til Vals til að leysa stöðu Maríu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Meagan McCray fyrrverandi markvörður Washington Freedom og FC Gold Pride í Bandaríkjunum er gengin til liðs við Íslands- og bikarmeistara kvennaliðs Vals.
Hjá Val leysir hún hlutverk Maríu B. Ágústsdóttur sem er farin í sænsku kvennadeildina.
McCray sem er 23 ára gömul hefur leikið fyrir öll yngri landslið Bandaríkjanna og kemur til Íslands 20. febrúar og fer með Val í æfingaferð liðsins.
,,Ég er mjög spennt að spila fyrir Val, topplið í Reykjavík á Íslandi,\" sagði McCray við Our Game tímaritið.
,,Ég hef alltaf viljað fá tækifæri til að spila sem atvinnumaður erlendis og fá reynslu sem byrjunarliðsmarkvörður.\"
,,Þetta er félag sem á 100 ára afmæli í ár svo þetta er stórt mál og ég er hæstánægð með að fá að taka þátt í því.\"
,,Miðað við síðustu leiktíðir vals þá hafa þær getað spilað í Meistaradeild kvenna gegn bestu liðum Evrópu. Ég veita að þetta verður frábær reynsla í fallegu landi.\"