04.04.11 - 10:11
Magnús Már Einarsson
Carlos Querioz tekur við landsliði Íran (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Carlos Queiroz hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Íran en hann hefur gert þriggja ára samning við knattspyrnusambandið þar í landi.
Queiroz stýrði síðast landsliði Portúgal en hann fékk að taka pokann sinn síðastliðið haust.
Querioz hafði náð samkomulagi um að taka við Íran í febrúar en þá vildi fjölskylda hans ekki flytja til landsins.
Nú eru samningar hins vegar í höfn og Queiroz mun stýra Íran fram yfir HM 2014 en talið er að hann muni fá tvær milljónir dollara í árslaun.
Queiroz hefur á þjálfaraferli sínum einnig stýrt Real Madrid auk þess sem hann var aðstoðarstjóri hjá Manchester United.

Heimild: Reuters