Aurelio De Laurentiis forseti Napoli svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag og ræddi meðal annars framtíð belgísku landsliðsmannanna Kevin De Bruyne og Romelu Lukaku sem eru samningsbundnir félaginu.
Þeir eiga báðir aðeins eitt ár eftir af samningi og virðast ekki ánægðir innan herbúða Napoli. De Bruyne er fæddur 1991 og Lukaku 1993 og eru þeir báðir partur af landsliðshópi Belgíu sem fer á HM.
„Við munum sjá hvað setur með þá tvo. Ég sé ekki vandamálið ef þeir vilja fara. Það er svo mikið af fótboltamönnum til víða um heim," sagði De Laurentiis. „Við verðum að bíða eftir ráðningu á nýjum þjálfara og sjá hvað setur."
Massimiliano Allegri er að taka við hjá Napoli eftir að Antonio Conte sagði þjálfarastarfinu lausu í maí.
De Laurentiis neitaði að tjá sig um Allegri, sem á ennþá nokkrar vikur eftir af samningi sínum við AC Milan, og ræddi um vilja sinn til að vinna fleiri titla og byggja nýjan leikvang í Napólí.
30.05.2026 22:30
De Bruyne: Ánægður að Conte sé farinn




