04.11.10 - 12:26
Magnús Már Einarsson
Olivier Kapo til Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Celtic hefur gert samning við kantmanninn Olivier Kapo en samningurinn gildir út tímabilið.
Þessi þrítugi leikmaður hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Wigan í sumar.
Kapo lék áður meðal annars með Auxerre og Juventus en hann gekk til liðs við Wigan frá Birmingham á 3,5 milljónir punda árið 2008.
Hann var inn og út úr liðinu hjá Wigan og í sumar náði hann samkomulagi við félagið um að losna undan samningi.

Heimild: BBC