Fotbolti.net
04.11.10 - 16:30
Magnús Már Einarsson

David Healy til Doncaster (Staðfest)

David Healy til Doncaster (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Doncaster, sem leikur í ensku Championship deildinni, hefur fengið framherjann David Healy á láni frá Sunderland.
Þessi 31 árs gamli Norður-Íri hefur ekkert komið við sögu hjá Sunderland á tímabilinu.

Eftir að Asamoah Gyan og Danny Welbeck komu til Sunderland í sumar hefur Healy verið úti í kuldanum en hann lék einnig með Ipswich á láni á síðasta tímabili.

Healy lék áður með Manchester United, Leeds og Fulham en hann er markahæsti landsliðsmaður Norður-Íra frá upphafi.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.