Fotbolti.net
04.11.10 - 13:24
Magnús Már Einarsson

Guðlaugur Victor til Dagenham & Redbridge á láni (Staðfest)

Guðlaugur Victor til Dagenham & Redbridge á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Liverpool

Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Liverpool, er farinn til Dagenham & Redbridge á láni fram að áramótum en þetta kom fram í Fréttablaðinu í morgun.
Guðlaugur Victor, sem er í U21 árs, landsliði Íslands gekk til liðs við Liverpool í janúar árið 2009.

Í fyrrakvöld skoraði Guðlaugur Victor í 2-0 sigri varaliðs Liverpool gegn Sunderland og í kjölfarið óskaði Dagenham & Redbridge eftir að fá hann á láni.

,,Allir hér í klúbbnum hafa sagt mér að þetta verði góð reynsla fyrir mig. Ég hef líka spurt menn eins og [Steven] Gerrard og [Daniel] Agger ráða og þeir hafa sagt mér að grípa tækifærið ef tilboð um lánssamning kemur frá liði í neðri deildunum,\" sagði Guðlaugur við Fréttablaðið.

Dagenham & Redbridge leikur í þriðju efstu deild á Engandi en liðið er í næstneðsta sæti sem stendur.

Heimild: Fréttablaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.