Fotbolti.net
04.11.10 - 22:13
Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Jónsson í Stjörnuna (Staðfest)

Ingvar Jónsson leikur með Stjörnunni næsta sumar og hefur samið við félagið til þriggja ára.

Ingvar Jónsson leikur með Stjörnunni næsta sumar og hefur samið við félagið til þriggja ára.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Stjarnan tilkynnti nú í kvöld að markvörðurinn Ingvar Jónsson sé genginn til liðs við félagið frá Njarðvík.

Ingvar skrifaði undir þriggja ára samning við Stjörnuna og mun leysa stöðu Bjarna Þórðs Halldórssonar sem hefur varið mark liðsins undanfarin ár en er genginn til liðs við Fylki.

Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður hafði verið orðaður við endurkomu í Stjörnuna en nú er ljóst að félagið er komið með Ingvar í markið svo væntanlega verður ekki af því.
Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild Stjörnunnar:
Ingvar Jónsson, markvörður, hefur gert þriggja ára samning við Stjörnuna

Stjarnan hefur fengið til liðs við sig Ingvar Jónsson, markvörð. Ingvar hefur gert þriggja ára samning við félagið og kemur frá Njarðvík.

Ingvar er 21 eins árs gamall og hefur alla sína tíð spilað með Njarðvík . Hann hefur spilað tæplega 70 leiki fyrir meistaraflokk Njarðvíkur þrátt fyrir ungan aldur. Hann á að baki 1 landsleik með U21 landsliði Íslands og 3 leiki með U19 landsliðinu.

Það er mikill styrkur fyrir Stjörnuna að hafa fengið Ingvar í Garðabæinn. Hann er klárlega einn af efnilegustu markvörðum landsins og hefur mikinn metnað til að ná lengra á sínum ferli. Sá metnaður fer saman við metnað annarra leikmanna, þjálfara og forráðamanna um að gera Stjörnuna að einu sterkasta liði landsins.

Eins og fram hefur komið hefur Bjarni Þórður Halldórsson yfirgefið herbúðir Stjörnunnar. Full ástæða er til að þakka Bjarna Þórði fyrir hans framlag til félagsins þau þrjú ár sem hann var í Garðabænum og óska honum velgengni í framtíðinni.

Stjarnan mun flytja frekari fréttir af leikmannamálum á allra næstu dögum, en búið er að framlengja samninga við lykilleikmenn og unnið að því að fá fleiri leikmenn til félagsins
Bjarni Þórður er farinn í Fylki.

Bjarni Þórður er farinn í Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.