Fotbolti.net
04.12.10 - 10:36
Hafliði Breiðfjörð

Marko Pavlov í Breiðablik (Staðfest)

Marko Pavlov í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

Marko Pavlov hefur gengið til liðs við Breiðablik en þetta kemur fram á Blikar.is í dag.

Marko er fæddur í Skopje í Makedóniu 1988 og er því 22ja ára gamall,en flutti ungur til Íslands og hóf æfingar með Stjörnunni þar sem hann lék í yngri flokkum til ársins 2005 en þá fór hann til Frakklands og lék um eins árs skeið með unglingaliði Caen.
Árið 2006 fór hann til Real Mallorca og þaðan var hann seldur til Real Betis sama ár þar sem hann hefur leikið með varaliðinu í 3ju efstu deild á Spáni fram til þessa.

Hann á að baki 11 leiki með U19 ára liði Íslands og 6 leiki með U17 ára liðinu. Marko hefur ennfremur leikið 5 leiki með U21 árs landsliði Makedóníu.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Breiðablik fær til liðs við sig eftir að liðið vann Íslandsmeistaratitilinn í haust. Áður höfðu komið þeir Arnar Már Björvinsson úr Stjörnunni, Viktor Unnar Illugason úr Selfossi og Hilmar Freyr Bjartþórsson úr Fjarðabyggð.

Liðið hefur aðeins misst einn leikmann sem lék með þeim í sumar. Það er Alfreð Finnbogason, leikmaður ársins, sem fór til Lokeren í Belgíu.

Heimild: Blikar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.