05.04.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Auðunn Örn Gylfason í KV (Staðfest)

Auðunn með íslandsmeistarabikarinn í 2. flokki 2009.

Mynd: KV

Knattspyrnufélag Vesturbæjar hefur fengið Auðunn Örn Gylfason lánaðan frá KR út tímabilið.
Auðunn var bikarmeistari með 2. flokki KR í fyrra og lék einn leik fyrir liðið í Pepsi deildinni.

Auðunn, sem fæddur er 1991, kemur beint inn í leikmannahóp KV fyrir deildarbikarleik við Njarðvík í kvöld.
Hann er annar leikmaðurinn sem félagið fær til liðs við sig á stuttum tíma en áður hafði Brynjar Orri Bjarnason komið til félagsins frá Våg í norsku þriðju deildinni.
KV féll úr 2. deildinni síðasta sumar og leikur því í 3. deild á komandi sumri. Liðið leikur heimaleiki sína á KR-velli.