Thelma Karen Pálmadóttir hefur komið inn af krafti hjá sænska félaginu Häcken eftir að hún var keypt þangað frá FH seint á síðasta ári.
Fanney Inga Birkisdóttir er markvörður Häcken og er á sínu öðru tímabili með félaginu. Hún fagnar því að hafa fengið Thelmu, sem var efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra, yfir til Svíþjóðar.

„Það er búið að vera geggjað sko," sagði Fanney um Thelmu.
„Það er rosalega góð stemning í hópnum og hún hefur smellpassað inn. Hún hefur komið með gæði inn á völlinn en er líka fáránlega skemmtilegur karakter utan hans. Það er mjög gott að hafa einhvern Íslending með sér sem maður getur pústað við inn á milli."
Thelma er aðeins 18 ára og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Fanney telur hana hafa tekið góða ákvörðun með að velja Häcken.
„Hún er fáránlega mikið efni. Ég er líka mjög glöð að sjá hana koma út í Häcken því þetta er félag sem vill virkilega þróa leikmenn áfram. Ég held að það muni klárlega hjálpa henni að vera þar; mjög góðar æfingar, metnaðarfullir þjálfarar og hellingur af góðum leikmönnum í kring sem geta hjálpað henni að verða enn betri," sagði Fanney.