Fotbolti.net
05.11.10 - 19:42
Hafliði Breiðfjörð

Rakel Hönnudóttir áfram með Þór/KA (Staðfest)

Rakel Hönnudóttir.

Rakel Hönnudóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Rakel Hönnudóttir landsliðskona Íslands hefur tilkynnt Þór/KA að hún muni verða áfram í herbúðum félagsins þrátt fyrir áhuga sænska félagsins Jitex á að fá hana í sínar raðir.
Frá þessu var greint á vef Þórs í kvöld en Rakel hafði farið á reynslu til Jitex í haust og sneri til baka með samningstilboð í höndunum.

Eftir að hafa hugsað málið ákvað hún hinsvegar að spila áfram með Þór/KA.

,,Þetta var erfið ákvörðun, ég var nokkrar vikur að ákveða þetta en valið var á milli þess að vera áfram hérna eða að fara til Svíþjóðar,\" sagði Rakel á vef Þórs í kvöld.

,,Ég fór og skoðaði liðið þarna úti og leist ágætlega á það en mér fannst ég ekki alveg tilbúin til að fara ennþá. Það eru ákveðnir hlutir sem mig vantar ennþá og ég held ég geti bætt mig ennþá betur.\"

Rakel Hönnudóttir hefur spilað vel fyrir Þór/KA undanfarin ár og hefur skorað 119 mörk í jafnmörgum leikjum fyrir liðið.

Heimild: Vefur Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.