Fotbolti.net
06.01.11 - 17:07
Magnús Már Einarsson

Colin Kazim-Richards til Galatasaray (Staðfest)

Colin Kazim-Richards til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Colin Kazim-Richards hefur yfirgefið Fenerbahce og gengið til liðs við erkifjendurna Galatasaray.
Kazim-Richards fékk að fara frítt frá Fenerbahce en hann gerði þriggja og hálfs árs samning við Gheorge Hagi og félaga í Galatasaray.

Þessi 24 ára gamli framherji ólst upp á Englandi og lék með Sheffield United þangað til hann fór til Fenerbahce árið 2007.

Á síðasta tímabili datt hann út úr myndinni hjá Fenerbahce og var lánaður til Toulouse í Frakklandi.

Móðir Kazim-Richards er frá Tyrklandi en hann hefur leikið 26 landsleiki með Tyrkjum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.