06.01.11 - 20:08
Alexander Freyr Tamimi
Tottenham lánar Kyle Walker til Aston Villa (Staðfest)

Kyle Walker í leik með Queens Park Rangers fyrir áramót.

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur gengið frá lánssamningi við Kyle Walker leikmann Tottenham og mun hann spila með liðinu út tímabilið.
Walker mætti á æfingasvæði Villa í morgun og gekkst undir læknisskoðun áður en samningar voru undirritaðir.
Yfirlýsing á vefsíðu Tottenham sagði: „Kyle Walker hefur gengið til liðs við Aston Villa á láni út tímabilið.\"
„Þessi U-21 landsliðsmaður Englands stóð sig vel á fjögurra mánaða lánsdvöl sinni hjá QPR sem leið undir lok í þessari viku.\"
Sjálfur sagði Walker: „Ég er spenntur að vera kominn hingað og ég ætla mér að sanna að ég sé nægilega góður til að spila í úrvalsdeildinni. Það var ástæðan fyrir því að Tottenham fékk mig hingað frá Sheffield United og ég ætla að sýna það hjá Aston Villa. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig og ég hlakka til.\"

Heimild: Soccernet