06.02.11 - 10:41
Hafliði Breiðfjörð
Telma Þrastardóttir í Stabæk (Staðfest)

Telma fagnar marki í leik með Aftureldingu.

Mynd: Tryggvi

Hin 15 ára gamla Telma Þrastardóttir er gengin í raðir Stabæk í Noregi frá Aftureldingu.
Hjá norska liðinu æfir Telma og spilar með meistaraflokki félagsins þrátt fyrir ungan aldur og er þegar farin að vekja lukku.
Hún spilaði æfingaleik með liðinu á dögunum og komst tvisvar nærri því að skora í leik sem lauk með 2-2 jafntefli
Telma hóf að leika með meistaraflokki Aftureldingar í Pepsi deild kvenna í fyrrasumar og vakti strax athygli fyrir mikla hæfileika. Hún skoraði 8 mörk í 13 leikjum með liðinu eða rúman helming af 15 mörkum liðsins.
Hún á að baki sjö leiki með U17 ára landsliði Íslands og hefur skorað í þeim fjögur mörk.