06.11.10 - 20:38
Magnús Már Einarsson
Viktor Unnar í Breiðablik (Staðfest)

Viktor í búningi Breiðabliks í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor í búningi Breiðabliks í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Unnar Illugason skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Breiðablik.
Þessi tvítugi framherji lék með Selfyssingum síðari hlutann á síðasta tímabili en hann ákvað í haust að finna sér nýtt félag.
Viktor hóf ferill sinn með Breiðablik en gekk þaðan í raðir Reading árið 2006.
Hann kom svo til Vals árið 2009 og lék með liðinu þangað til í júlí þegar hann fór til Selfoss.
Með Selfyssingum skoraði Viktor þrjú mörk í tíu leikjum í Pepsi-deildinni en hann náði ekki að hjálpa liðinu að forðast fall.
Rætt verður við Viktor í viðtali á Fótbolta.net síðar í kvöld.