Hallgrímur Heimis orðaður við tvö aðstoðarþjálfarastörf

Hallgrímur og faðir hans í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur og faðir hans í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram kom í hlaðvarpinu Dr Football í síðustu viku að Hallgrímur Heimisson væri orðaður við aðstoðarþjálfarastöðuna hjá karlaliði Fram og hjá kvennaliði Vals.
Viktor Unnar Illugason, sem starfar við þjálfun í yngri flokkum Vals, sagði frá þessu í hlaðvarpinu. Hallgrímur starfar einnig sem þjálfari í yngri flokkum Vals.
„Halli Heimis er orðaður við aðstoðarþjálfarann hjá Rúnari Kristins og Pétri Péturs," sagði Viktor Unnar.
Hallgrímur er efnilegur þjálfari en hann er sonur Heimis Hallgrímssonar, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands og núverandi þjálfara Jamaíku. Hann ræddi við Fótbolta.net núna á dögunum og sagði þá:
„Ég er ekki að flýta mér. Ég er að passa mig á því að gera þetta allt á réttum tíma."
Hann er að hugsa um að komast í meistaraflokksþjálfun, það er næsta markmið.
„Þetta er klárlega eitthvað sem ég er að hugsa um fyrir framtíðina. Ég er spenntur að fara í teymi hjá einhverjum stórlax sem ég mun læra af," sagði Hallgrímur jafnframt.