Fotbolti.net
06.12.10 - 14:30
Hafliði Breiðfjörð

Chris Hughton rekinn frá Newcastle (Staðfest)

Vilja mann með meiri reynslu af knattspyrnustjórn

Chris Hughton er hættur sem knattspyrnustjóri Newcastle United.

Chris Hughton er hættur sem knattspyrnustjóri Newcastle United.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United rak í dag knattspyrnustjórann Chris Hughton úr starfi eftir slakt gengi liðsins upp á síðkastið.
Liðið tapaði 3-1 fyrir WBA á laugardaginn en viku áður höfðu þeir gert 1-1 jafntefli við Chelsea. Fyrir það höfðu þeir tapað 5-1 fyrir Bolton.

Hughton kom Newcastle aftur í ensku úrvalsdeildina á þessari leiktíð eftir að hafa fallið tímabilið 2009-2010.

Liðið er sem stendur 11. sæti deildarinnar með fimm sigra úr 16 leikjum. Aðeins tveir þeirra voru á heimavelli.

Brottrekstur hans var staðfestur á vef Newcastle í dag þar sem félagið segist taka þessa ákvörðun þar sem það vanti reynslumeiri mann í brúna.

,,Stjórnin vill koma á framfæri þökkum til Chris fyrir veigamikið framlag við að koma félaginu úr Championship deildinni í úrvalsdeildina,\" sagði í yfirlýsingu félagsins.

,,Chris hefur sýnt mikinn karakter og verið félaginu trúr síðan hann var ráðinn stjóri í október 2009. Félagið óskar honum alls hins besta í framtíðinni. Því miður telur stjórnin að einstaklingur með meiri reynslu sem knattspyrnustjóri sé nauðsyn til að koma félaginu áfram.\"

,,Það verkefni að ráða nýjan stjóra hefst núna. Tilkynning verður gefin út fljótlega varðandi hvað tekur við þar til eftirmaður verður ráðinn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.