06.12.10 - 20:57
Hafliði Breiðfjörð
Martin Jol hættur með Ajax (Staðfest)

Martin Jol.

Mynd: Getty Images

Martin Jol.

Mynd: Getty Images
Ajax tilkynnti í kvöld að Martin Jol sé hættur þjálfun liðsins sem hefur átt erfitt uppdráttar upp á síðkastið.
Jol sem er 54 ára gamall mun hafa komist að samkomulagi við félagið um að rifta samningi sínum nú þegar.
Frank de Boer fyrrverandi varnarmaður hollenska landsliðsins mun taka við stjórn liðsins nú þegar og vera fram að vetrarfríinu síðar í mánuðinum.
Ajax fór í fjórða sæti hollensku deildarinnar eftir 1-1 jafntefli við NEC Nijmegen á laugardaginn.
Liðið sem hefur fjórum sinnum orðið Evrópumeistari er einnig úr leik í Meistaradeild Evrópu.

Heimild: AP