07.01.11 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Sinisa Valdimar Kekic í Sindra (Staðfest)

Sinisa Valdimar Kekic.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sindri, frá Höfn í Hornafirði, hefur náð samkomulagi við reynsluboltann Sinisa Valdimar Kekic um að hann muni leika með liðinu í þriðju deild í sumar.
Kekic, sem er 41 árs gamall, hefur leikið á Íslandi síðan árið 1996 en hann var lengi í herbúðum Grindvíkinga.
Eftir dvöl hjá Þrótti, Víkingi R. og HK fór Kekic til Reynis í Sandgerði árið 2009.
Í haust var Kekic ráðinn þjálfari Reynis en hann hætti síðan með liðið eftir einungis einn mánuð í starfi.
Óli Stefán Flóventsson þjálfar Sindra en hann lék lengi með Kekic hjá Grindavík á sínum tíma.
,,Við stefnum hátt og á fimm ára plani ætlum við að byrja að festa okkur í sessi sem 2.deildarlið. Á þessu eða næsta ári ætlum við okkur að komast upp og þetta er stór liður í því að fa svona stórt nafn þó gamall sé,\" sagði Óli Stefán við Fótbolta.net í dag.
,,Við erum með mjög ungt lið í höndunum. Í leik í fyrra var ég 36 ára og hafsentinn sem spilaði með mér 42 ára en samt var meðalaldurinn 21,4. Þannig að það er mjög gott að fá reynslu og við erum opnir fyrir frekari liðsstyrk.\"
Sindri samdi einnig við tvo unga leikmenn innan sinna raða á dögunum en félagið ætlar að semja við fleiri unga leikmenn á næstunni.