Fotbolti.net
07.01.11 - 16:04
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Luca Toni til Juventus (Staðfest)

Luca Toni er kominn til Juventus.

Luca Toni er kominn til Juventus.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Luca Toni gekk í dag til liðs við Juventus frá Genoa og á að leysa hlutverk Fabio Quagliarella sem missir af tímabilinu vegna meiðsla.
Toni fer frítt til Juventus en félagið ákvað að næla í hann eftir að ljóst varð að Quagliarella skaddaði liðband í hné í 4-1 tapi liðsins gegn Parma í gær. Hann þarf að fara í aðgerð vegna þessa og verður frá í allt að hálft ár.

Toni sem er 33 ára gamall skrifaði undir samning sem gildir fram í júní árið 2012 að því er kemur fram í yfirlýsingu Juventus.

Hann er 33 ára gamall fyrrverandi landsliðsmaður Ítalíu sem hefur áður spilað með AS Roma og Bayern Munchen auk fleiri liða.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.