Fotbolti.net
07.01.11 - 22:00
Hafliði Breiðfjörð

Steve Sidwell til Fulham (Staðfest)

Steve Sidwell á æfingu með Aston Villa á Laugardalsvelli.

Steve Sidwell á æfingu með Aston Villa á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Fulham hefur gengið frá kaupum á Steve Sidwell miðjumanni Aston Villa en þetta var staðfest í kvöld.
,,Hann er leikmaður sem ég hef fylgst með nokkurn hluta af ferlinum og það var komið samkomulag um að fá hann áður þegar ég kom,\" sagði Mark Hughes stjóri Fulham.

,,Þá fannst mér bara ekki rétta stundin til að láta það gerast því ég var nýr hjá félaginu. En hann hefur verið í huga mér allt síðan þá og þegar tækifærið kom til að fá hann í janúarglugganum brugðumst við skjótt við.\"

Sidwell sem lék áður með Chelsea og Reading er 28 ára gamall. Hann hefur verið úti í kuldanum hjá Aston Villa undanfarna mánuði.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.