07.01.11 - 22:06
Hafliði Breiðfjörð
Edin Dzeko til Manchester City (Staðfest)

Edin Dzeko er kominn til Manchester City.

Mynd: Getty Images

Edin Dzeko er nú formlega genginn í raðir Manchester City frá Wolfsburg í Þýskalandi. Hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið og mun klæðast treyju númer 10 samkvæmt vef félagsins.
Dzeko er í viðtali á vef Manchester City þar sem hann segist ekki geta beðið eftir að hefja leik með liðinu en hann verður líklega með gegn Wolves í næsta heimaleik á laugardaginn eftir viku.
,,Það er kominn langur tími síðan ég hef verið orðaður við félagið eða allt síðan í sumar en Wolfsburg vildi ekki selja mig fyrr en í dag,\" sagði hann eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun.
,,Það voru of miklar vangaveltur í blöðunum en höfuðið á mér er alltaf skýrt. Þetta er mikilvægt í þessu tilfelli því ef þú hugsar of mikið um hvað gæti orðið þá er það truflandi og gæti haft áhrif á leikinn þinn. Mig langaði alltaf mest til að fara í City.\"
,,Þeir hafa spilað vel á tímabilinu. Ég hef horft mikið á þá í sjónvarpinu. Núna eru vangavelturnar á enda og ég vil bara gera mitt besta.\"

Heimild: Vefur Manchester City