07.01.11 - 23:56
Hafliði Breiðfjörð
Matthías Vilhjálmsson gengur í raðir Colchester (Staðfest)
Lánaður til 1. apríl með möguleika á kaupum - Semur við FH út 2012

Matthías í leik með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Matthías í leik með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Matthías Vilhjálmsson fyrirliði bikarmeistara FH gengur á mánudaginn í raðir enska 1. deildar félagsins Colchester. Þetta staðfesti hann við Fótbolta.net núna í kvöld en aðeins á eftir að ganga frá pappírum vegna skiptanna.
Matthías æfði með liðinu í nóvember og eftir það hafði félagið áhuga á að fá hann til liðs við sig en félagaskiptagluggginn í Englandi opnaði um áramótin.
Nú hefur svo verið gengið frá því að hann fer til félagsins á láni til Colchester til 1. apríl næstkomandi. Vilji Colchester halda honum eftir það þarf að ganga frá kaupunum fyrir þann tíma.
Við sama tækifæri og þetta var frágengið framlengdi Matthías svo samningi sínum við FH um eitt ár og er því samningsbundinn félaginu út árið 2012.
Colchester er í 11. sæti ensku 1. deildarinnar sem er þriðja efsta deild þar í landi. Liðið er með 31 stig og fimm stigum minna en Southampton sem er í öðru sætinu og á leik til góða.
Rætt verður vði Matthías um vistaskiptin í viðtali hér á Fótbolta.net í fyrramálið.