Fotbolti.net
07.02.11 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Bentína Frímannsdóttir í FH (Staðfest)

Helena Ólafsdóttir og Bentína eftir undirskriftina.

Helena Ólafsdóttir og Bentína eftir undirskriftina.

Canon

Mynd: FH

Kvennaboltinn
Kvennalið FH fékk góðan liðsstyrk í gær þegar Guðrún Bentína Frímannsdóttir gekk til liðs við félagið frá Grindavík.
Bentína sem er varnarmaður þótti eiga frábæra leiki í vörn Grindavíkur í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð. Hún hefur leikið 51 leik með meistaraflokki liðsins og skorað í þeim fjögur mörk. Auk þess á hún að baki fjóra leiki með U17 ára landsliði Íslands.

Hún er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við FH eftir að liðið féll úr Pepsi-deildini í haust. Áður hafði Nanna Rut Jónsdóttir komið frá ÍBV, Guðný Guðleif Einarsdóttir frá KR og Margrét Sif Magnúsdóttir úr Haukum og þá kemur Aníta Lísa Svansdóttir til baka úr láni.

FH hefur misst 11 leikmenn frá síðustu leiktíð, hinar portúgölsku Liliana Martins, Joana Pavao og Ana Rita Andrade Gomes, Sigríður Guðmundsdóttir er hætt, Birna Berg Haraldsdóttir hefur verið lánuð til ÍBV, Elsa Petra Björnsdóttir líklega hætt, Sandra Björg Sigþórsdóttir fór til Hattar, Hrönn Karólína Hallgrímsdóttir og Iona Sjöfn Huntington-Williams eru hættar og Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir fór aftur til KR úr láni. Þá er Margrét Sveinsdóttir í námi erlendis en kemur til félagsins í júlí.

Helena Ólafsdóttir þjálfar FH og henni til aðstoðar er Guðrún Jóna Kristjánsdóttir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.