07.03.11 - 18:02
Magnús Már Einarsson
Barry Bannan til Leeds á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leeds hefur fengið kantmanninn Barry Bannan á láni frá Aston Villa út þetta tímabil.
Þessi 21 árs gamli Skoti hefur leikið 19 leiki með Aston Villa í vetur og því kemur nokkuð á óvart að hann fái að fara á láni.
Bannan var einn sprækasti maður U21 árs landsliðs Skota þegar liðið tapaði gegn Íslendingum í umspili um sæti á EM síðastliðinn vetur.
Á síðasta tímabili lék hann 24 leiki á láni hjá Blackpool og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Hann mun núna reyna að gera slíkt hið sama með Leeds en liðið er sem stendur í sjötta sæti í Championship deildinni.

Heimild: Sky